Viðeyjarstofa

Við bjóðum þig velkominn í Viðey.

Þú veist kannski, að hún er svipuð að flatarmáli og furstadæmið Monaco. En þó að hér sé ekkert furstadæmi, þá ert þú samt kominn í elsta hús landsins, fyrsta steinhúsið  - Viðeyjarstofu 1755.  Hún var fyrrum aðsetur æðstu embættismanna hérlendra og var gjarnan nefnd „Slotið“ í Viðey.

Viðey er merkur sögustaður. Þar hafa fundist merki um mannvistir allt frá 10. öld. Árið 1225 var reist klaustur í eynni, mikið menningar- og lærdómssetur og var svo til siðaskipta um miðja 16. öld. Í siðaskiptunum var klaustrið rænt og Viðey gerð eign danska kóngsins. "Faðir Reykjavíkur" Skúli Magnússon fyrsti íslenski landfógetinn lét byggja Viðeyjarstofu sem embættisbústað sinn. Skúli stóð einnig að smíði Viðeyjarkirkju sem var tekin í notkun árið 1774 og er næstelsta kirkja landsins. Kirkjan er með upprunalegum innréttingum sem eru þær elstu á landinu.


Viðey - Sumar 2010

Áætlun frá Skarfabakka - Sundahöfn frá 15. maí til 30. ágúst

Til Viðeyjar frá Skarfabakka:
11:15 - 12:15 - 13:15 - 14:15 - 15:15 - 16:15 - 17:15  

Til Viðeyjar frá gömlu höfninni í Reykjavík (Ægisgarður)
12:00

Frá Viðey til Sundahafnar 
11:30 - 12:30 - 13:30 - 14:30 - 15:30 - 16:30 - 17:30  - 18:30 

Frá Viðey til gömlu hafnarinnar í Reykjavík (Ægisgarður)
15:30

Strætó nr. 5 stoppar 300 metra frá Skarfabakka.
Hér er að finna kort af svæðinu


Viðeyjarstofa
- Kaffi Viðey

Á daginn er starfrækt notalegt kaffihús í Viðeyjarstofu þar sem boðið er upp á ljúffengan matseðil og heita og kalda drykki. Einstakt tækifæri til að njóta þessa fallega umhverfis og góðra veitinga.

Sumartilboð

Ferja og vaffla ásamt kaffi - 1650 kr. fyrir fullorðna
Ferja og vaffla ásamt svala - 900 kr. fyri börn


Kaffiseðill

Kaffihúsið er opið alla daga frá 11.30-17:00

Viðeyjarbrauð  kjúklingasalat, gulrætur, kúmen, agúrkusósa
1450 kr
        
Grösug íslensk kjötsúpa og ristað víkingabrauð
2300 kr      

Lauksúpa með hvítlauksristuðum brauðteningum og rifnum osti
1250 kr       

Pylsa að hætti Íslendinga
350 kr
        
Heit samloka m/ nautakjöti, bakaðri kartöflu & kaldri Bernaise  sósu
2450 kr
        
Grilluð samloka með skinku og osti
650 kr
        
Vaffla með heimalagaðri jarðaberjasultu og rjóma
650 kr.   
ásamt heitu súkkulaði
1200 kr

Kleinur og ástarpungar
200 kr
        
Skúffukaka
300 kr     

Ef um hópa er að ræða er möguleiki að vera í sér sal - bæði yfir daginn og á kvöldin.

  Hvalaskoðunar fyrirtækið Elding sér um samgöngurnar á milli lands og eyju.



Viðeyjarstofa
- Restaurant

Viðeyjarstofa er tilvalinn staður til að vera með hvers konar veislur, fundi og ýmis konar samkvæmi.
Húsið rúmar allt að 130 manns í sæti. Boðið er upp á samsetta hópmatseðla þar sem allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Allar nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

 





  

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is